Velkomin á síðuna okkar

Opnunartími verslunar:

mánudaga-föstudaga frá kl. 11-18
laugardaga frá kl. 11-14

Handverkskúnst ehf. er í eigu mæðgnanna Guðrúnar Maríu og Elínar Kristínu. Með samstarfi okkar undir nafninu Handverkskúnst stefnum við mæðgur á að:

  • Starfrækja verslun og vefverslun þar sem þú getur verslað gæðagarn á verði við allra hæfi. Lipur og góð þjónusta.
  • Halda námskeið þar sem við kennum hekl og prjón fyrir byrjendur sem og lengra komna.
  • Bjóða upp á uppskriftir bæði skrifuðum af okkur sjálfum sem og þýddum uppskriftum frá öðrum. Allar uppskriftir sem við þýðum eru að sjálfsögðu þýddar með leyfi höfundar.
  • Blogga saman hér á garn.is / handverkskunst.is. Á blogginu munum við aðallega deila með ykkur handavinnunni okkar. Við ætlum einnig taka saman fróðleik og leiðbeiningar um handavinnu af ýmsum toga.
  • Halda úti Facebook síðu þar sem við deilum færslum af blogginu sem og öðru sem okkur dettur í hug.