Føroysk Bindingarmynstur

Hún amma gamla á þessa gordjöss bók með bindingamynstrum aka prjónamynstrum. Þetta er saman safn af klassískum Færeyskum prjónamynstrum og bók sem ég alveg hreint elska. Í mörg ár hef ég horft á hana og óskað þess að ég hefði meira gaman af því að prjóna svo ég gæti notað þessa bók. Amma hefur t.d. gert marga æðislega vettlinga með þessum mynstrum. En það þýðir ekki að gefast upp. Svo heilapaddan mín síðustu daga hefur verið að gera mér heklaðar gardínur í eldhúsið hjá mér og notast við þessa bók til að gera mynstur.

Bókin er gefin út í Þórshöfn 1949 af Hans M. Debes og er tileinkuð Majestæt Dronning Alexandrine, sem er amma Margrétar Danadrottningar.

„Í Føroyum hevur altíð verið bundið nógv, og ikki hevur ullin trotið…“


„Savnið inniheldur 143 mynstur, íð øll – tey mynstur, íð nýtt verða til konufólka- og mannstoyggjur til thjódbúnan undantikin – hava nøvn. Hesi nøvn, eitt nú Kettunøs, Tímaglas, Hálvmáni, Heila- og Hálva stjørna o.s.fr., vísa okkum á, hvussu forfedur okkara gjøgnum tíðirnar hava sitið og skapað mynstur eftir hartil hóskandi tingum.“

Það sem ég er að gera er í svipuðum dúr og þessi peysa.

Ég blandaði saman þessum tveim Konufólkatroyggjumynstur í mitt eigið…

…sem lítur svona út c“,)
Hæfileikar mínir sem mynsturteiknari eru svakalegir

Þetta gengur frekar hægt fyrir sig. Og enn er ég ekki viss hvað mér finnst almennilega um þetta. Ég er mikið fyrir að hekla fast og þétt…og finnst þetta frekar laust í sér hjá mér. En mér er sagt að þetta eigi eftir að þétta sig hjá mér þegar ég þvæ það.
Kemur allt í ljós.
Ég á pottþétt eftir að setja inn fleiri myndir þegar verkefnið er komið á lengri veg.

Skildu eftir svar