Ég fékk uppskriftin af Hearts Desire Doily hér á Ravelry.
Ég fékk þessa uppskrift líka af Ravelry hún heitir Sunflower shadow.
Mér finnst hún ekkert smá sæt…en ég gæti kannski frekar notað dúkinn sem glasamottu.
Þessa mini dúllu fékk ég úr einni bók sem ég á eftir Edie Eckman.
Bókin hennar Edie er svo æðisleg að því leiti að hún hefur uppskriftirnar á tvo vegu. Hún skrifar uppskriftina OG hún er með uppskriftina teiknaða upp með hekl táknum.
Hekluð tákn eru eitt það æðislegasta sem ég hef uppgötvað lengi. Það er svo þægilegt að geta horft bara á mynd og séð hvernig á að hekla. Og það besta við þessi tákn er að þau eru alþjóðleg. Það skiptir engu máli á hvaða tungumáli uppskriftin er – ef það eru tákn þá getur mar heklað það!