Teppahekl – byrjendanámskeið

Á þessu námskeiði verða kennd tvö falleg en einföld hekluð teppamynstur.
Námskeiðið hentar bæði fyrir algera byrjendur í hekli sem
og heklara sem kunna örlítið en langar að læra meira.
Örvhentir og rétthentir velkomnir.

Kennt verður að fara eftir uppskrift bæði í máli og myndum (hekltáknum).
Flestir nemendur munu aðeins hekla eitt mynstur á námskeiðinu sjálfu,
en eftir námskeiðið hafa þeir öðlast færnina til þess að gera hitt mynstrið heima.

022 copy

030

Námskeiðið er kennt miðvikudaginn 7. maí kl. 18:30-21:00
Staðsetning: Garnhornið í A4, Skeifunni 17, 108 rvk.

Námskeiðið er ca. 2,5 klst og innifalið í námskeiðinu er:

  • Garn í prufu.
    (Hægt er að kaupa meira garn á afslætti í verslun ef nemendur vilja kaupa garn í heilt teppi.).
  • Uppskriftir í máli og myndum.
  • Leiðbeiningahefti um hekl.

Þú þarft að koma með:

  • Heklunál nr. 3,5.
    (Hægt er að kaupa heklunál á staðnum).
  • Góða skapið

Verð: 5.000 kr.

**Athugið að mörg stéttarfélög styrkja félaga sína á námskeið**

Skráning og nánari upplýsingar fást í tölvupósti handverkskunst@gmail.com eða í síma 662-8635 Elín

Lágmarksfjöldi þátttakenda: 4
Hámarksfjöldi þátttakenda: 8

Skildu eftir svar