20/30



Garn: Kambgarn
Litir: Hvítur (0051), Vatnsblár (1216), Blágrænn (1218), Gallablár (0942)
Nál: 3,5 mm

Átti pínupons rest af blágræna litnum sem ég var að nota í byrjun og ákvað að gera einn ferning með þrem bláum litum.

Ég er alveg búin að sjá það að þeir heklarar sem eru að hekla ferning á dag í heilt ár eru bæði mun skipulagðari en ég og ég efast um að þær eiga börn. 

Hann Móri minn er veikur einu sinni enn. Hann virðist svo sannarlega ætla að vera eyrnabólgubarn fyrir allan peninginn. Hann er voða lítill og vill bara láta halda á sér. Þær aðstæður bjóða ekki upp á mikið hekl og sérstaklega ekki þegar ég þarf að sitja við tölvuna og hekla eftir uppskrift. Ég er því búin að vera að „stelast“ til að hekla aukaverkefni sem ég þarf ekki uppskrift að.


Mórinn og Mamman saman að hekla og horfa á Söngvaborg.

Skildu eftir svar