Um helgina ætlum við systur að taka þátt í Handverksmarkaði á Menningarnótt. Þetta verður annað árið í röð sem við gerum þetta.
Í ár verður markaðurinn á Káratorgi, sem er á milli Kaffismiðjunnar Kárastíg og Drekans Njálsgötu. Markaðurinn er Laugardaginn 18. ágúst frá 12-16.
Ég er búin að vera að hekla utan um nokkrar barnamatskrukkur til að selja á markaðnum. Er ekkert smá ánægð með þessa litagleði hjá mér og missti mig aðeins í að taka myndir af krukkunum…svona aldrei þessu vant c“,)
Þessar krukkur eru allar til sölu og kosta 1000 krónur stykkið.
Er alveg ástfangin af þeim