Pinterest

Ég er ekki mjög dugleg að fylgjast með handavinnubloggum en þegar ég opna Pinterest geta flogið klukkutímar og ég gleymi mér alveg. Á Pinterest er hægt að finna nánast allt milli himins og jarðar. Ég er þó mest í því að skoða allt er viðkemur prjóni, hekli og mat.

Þessa dagana eiga kaðlar nánast hug minn allan þar sem ég er með ákveðna flík í huga sem mig langar að hanna og flæðir hugur minn um Pinterest í leit að hugmyndum. Hérna get ég geymt myndir sem ég séð og fundið þær allar á einum stað og farið beint á uppskrift eða nánari lýsingu eða bara skoðað mydina.

Ef þú hefur ekki skoðað Pinterest mæli ég með því að þú stofnir þér aðgang og opnir heim þinn á þann mikla fróðleik sem þar er inni.

Hér eru valdar myndir af köðlum sem ég fann á Pinterest

kaðlar

Skemmtileg útfærsla á einföldum köðlum

fe0778baee803078b7baa9b9621ddb50

Fallegt að setja kaðal að aftan

d9f483644333e148ff5cc00d53bb39c4

Þennan kaðal hef ég ekki séð áður

e09d5e762b852807093e3fdee7e53ebd
Þessi er á „to do“ listanum mínum. Falleg flík

2d2eb5fabe2ff01e8fa891571f3e43fe breytt
Fallegt

1e9573b9a49a27687912d3b2bb8350d5
Jú ég er nú alltaf á leiðinni að prjóna utan um púða

246ec1391796501d7d3987f8e2a1bc83

d022168903633c656797c182aad16328Öðruvísi

061dff027481d97eca161639eb4c3cc9
Þessi fallega kápa fer ekki úr huga mér. Hún verður prjónuð þegar ég hef teiknað upp kaðlana sem notaðiur eru

Nánari upplýsingar um þessa kaðla og fleiri getið þið fundið á töflunni minni á Pinterest „Cable Knitting Patterns“.

Notendanafnið mitt á Pinterest er gmgknitting en Elínu finnið þið undir elinella

Góða skemmtun
Prjónakveðja
– Guðrún María

 

Skildu eftir svar