Drops Snow – Dökkgrár (nr 14)

550 kr.

Frábært til þæfingar!

DROPS Snow er mjúkt, þykkt og létt 1-þráða garn úr 100% ull sem auðvelt er að vinna úr hlýjar og fallegar flíkur – hentar vel til þæfingar.

Trefjarnar eru ómeðhöndlaðar, sem þýðir að þær eru einungis þvegnar og hafa ekki verið meðhöndlaðar með neinum kemískum efnum fyrir litun. Með þessu er haldið utan um gæði og eiginleika trefjanna jafnframt sem þetta gefur betri lögun og áferð.

Mjög vinsælt garn fyrir veturinn, DROPS Snow er fáanlegt í 2 mismunandi litaflokkum: Uni, úrval sígildra hreinna lita; og Mix, þar sem mismundandi litir eru kembdir saman fyrir spuna til þess að fá hreyfingu í litina.

100% Ull
50 gr = um 50 metrar
Drops garnflokkur E – Super Bulky grófleiki
Prjónar & heklunál: nr 9
Prjónfesta: 10 lykkjur x 14 umferðir = 10 x 10 cm
Þvoið í höndunum, hámark 30°C / Leggið flíkina flata til þerris / Hentugt til þæfingar

*DROPS Eskimo skiptir um nafn og heitir nú DROPS Snow.

» Finndu fríar uppskriftir fyrir Drops Snow á heimasíðu Garnstudio.
» Skoðaðu hvað aðrir hafa prjónað/heklað úr Drops Snow á Ravelry.
» Skoðaðu hvað aðrir hafa prjónað/heklað úr Drops Eskimo á Ravelry.

Merktu myndirnar þínar með myllumerkinu #dropssnow þegar þú deilir myndum af verkefnunum þínum á netinu! 

Á lager