Drops Big Delight – atlantis
Spennandi garn sem hentar vel til þæfingar!
Þægilegt og mjög mjúkt ullargarn úr einum þræði í afar fallegum litum!
DROPS Big Delight kemur í framhaldi af DROPS Delight, þykkara garn, spunnið alveg eins – nema úr 100% ull- fáanlegt í 100 gr dokkum. Þetta marglita ”print” garn er með löngum litaendurtekningum sem mynda einstakt mynstur og spennandi litasamsetningar, ljósar og dökkar mynstureiningar birtast. Þetta er ekki galli, heldur hluti af eiginleikum garnsins.
DROPS Big Delight er með fljótandi skiptingum og smá breytingum í þykkt á þræðinum sem gefur fallega ”handspunna” áferð. Frábært garn sem gefur innblástur og eflir sköpunargleði og er mjög hentugt til þæfingar.
Sýnishornin á myndum á litaspjaldi sýna litabreytingar á garninu þegar prjónað er yfir fáar lykkjur, litabreytingarnar verða mismunandi eftir stærð stykkis.
100% Ull
100 gr = um 190 metrar
Drops garnflokkur C – Aran grófleiki
Prjónar & heklunál: nr 5
Prjónfesta: 17 lykkjur x 22 umferðir = 10 x 10 cm
Þvoið í höndunum, hámark 30°C / Leggið flíkina flata til þerris / Hentugt til þæfingar
» Finndu fríar uppskriftir fyrir Drops Big Delight á heimasíðu Garnstudio.
» Skoðaðu hvað aðrir hafa prjónað/heklað úr Drops Big Delight á Ravelry.
Merktu myndirnar þínar með myllumerkinu #dropsbigdelight þegar þú deilir myndum af verkefnunum þínum á netinu!