Schachenmayr Regia Pairfect Partnerlook Color – Anton Color
4-þráða (4ply) sokkagarn. Að prjóna samstæða sokka er leikur einn með þessu fallega garni. Dragðu gula þráðinn út úr dokkunni og klipptu frá – þannig færðu samstætt par!
Hvert litapar hefur sitt nafn og eru litirnir eins en víxlast. Prjónaðu eins sokka á þig og besta vin þinn.
- Litirnir Anton og Antonia – eru blanda af heitbleikum og gráum tónum.
- Litirnir Franz og Franziska – eru blanda eplagrænum og gráum tónum.
- Litirnir Erik og Erika- eru blanda af túrkis og brúnum tónum.
- Litirnir Emil og Emilia – eru blanda af bláum og rauðum tónum.
75% ull, 25% polyamid
Prjónar nr 2,-3 mm
Prjónfesta: 30 lykkjur = 10 sm á prjóna nr 2-3
Þvoið í þvottavél 40°C
Rafræn sokkauppskrift fylgir með kaupum á garni.