Ný bók með uppskriftum eftir Mari-Liis Lille (Lilleliis). Fyrri bók hennar ‘Magical Amigurumi Toys’ sló í gegn um allan heim. Í þessari bók eru 15 nýjar krúttlegar bangsafígúrur sem eru hver annarri sætari.
Byrjendur sem og lengra komnir heklarar finna uppskriftir við hæfi í þessari bók. Í bókinni er einnig að finna grunn leiðbeiningar fyrir hekl og er hver fígúra mynduð í bak og fyrir.