Prjónum hæla – námskeið
Að prjóna sokka er skemmtileg iðja. Hællinn getur aftur á móti stundum vafist fyrir fólki, við eigum við okkar uppáhalds hæl og veigrum okkur við að prjóna aðra tegund.
Á þessu námskeiði förum við yfir fjóra mismunandi hæla;
- Halldóruhæl
- Stundaglashæl
- Ömmuhæl
- Norskur hæll
Námskeiðið er haldið þriðjudaginn 28. apríl kl. 18:30 -21 í versluninni Handverkskúnst Hraunbæ 102a, Reykjavík verð: kr. 6.000
Að hafa með:
- Garn í hælaprufur eða sokk sem þú hefur stoppað við hælinn á. Einnig hægt að kaupa garn á staðnum.
- Prjóna sem henta garni þínu (sokkaprjóna eða hringprjón)
Annað:
- 15% afsláttur af garni úr verslun á námskeiðskvöldi
Þetta námskeið er ætlað fyrir þá sem hafa grunnþekkingu á prjóni. Örvhentir sem og rétthentir velkomnir.
Verð kr. 6.000. Námskeið er ekki endurgreitt nema forföll séu tilkynnt með minnst 3ja tíma fyrirvara.
Lágmarksfjöldi þátttakenda: 4, greiða þarf námskeiðsgjald við skráningu kr. 6.000.
**Athugið að mörg stéttarfélög styrkja félaga sína á námskeið**