Andromeda Pillow – púðaver

Prjónaður hringlaga púði með gatamynstri úr Drops Alpaca. Passar fyrir púða 40 cm að þvermáli.

DROPS Design: Mynstur z-838 (Garnflokkur A)

Mál: 35 cm að þvermáli. Púðaverið passar fyrir hringlaga púða sem er 40 cm að þvermáli þar sem það á að strekkjast aðeins svo að það verði fallegra

Garn: Drops Alpaca

  • 200 g litur á mynd er nr 2917, túrkis.

Prjónfesta: 24 lykkjur x 48 umferðir = 10×10 cm í garðaprjóni.

Prjónar: Sokka- og hringprjónn 40 og 60 cm, nr 3.

Uppskrift má nálgast frítt hérna og garnið kaupir þú hérna: Drops Alpaca eða heimsækir okkur í verslunina.