Don’t Leaf Me Behind Pillow – púðaver

Prjónað púðaver með laufblaðamynstri. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS Design: Mynstur me-120 (Garnflokkur B)

Mál: 45×45 cm. Púðaverið passar fyrir púða í stærðinni 50×50 cm þar sem það á að strekkjast aðeins svo að það verði fallegra.

Garn: Drops Merino Extra Fine

  • 400 g litur á mynd er ljósbeige nr 08

Prjónar: Hringprjónn 80 cm, nr 3

Prjónfesta: 23 lykkjur x 32 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 cm.

Uppskrift má nálgast frítt hérna og garnið kaupir þú hérna: Drops Merino Extra Fine eða heimsækir okkur í verslunina.