Norfolk Pillow – púðaver

Norfolk Pillow

Prjónað púðaver með köðlum. Stykkið er prjónað úr Drops Big Merino.

DROPS Design: Mynstur mb-042 (Garnflokkur C eða A+A)

Mál: ca 45×47 cm. Púðaverið passar fyrir púða í stærðinni 50×50 cm þar sem það á að strekkjast aðeins svo að það verði fallegra.

Garn: Drops Big Merino

  • 300 g, litur á mynd er marmari nr 08.

Prjónfesta: 17 lykkjur x 22 umferðir = 10×10 cm í sléttu prjóni.

Prjónar: Hringprjónn 80 cm, nr 5.

Uppskrift má nálgast frítt hérna og garnið kaupir þú hérna: Drops Big Merino eða heimsækir okkur í verslunina.