Winter Snuggle Pillow – púðaver

Prjónað púðaver með köðlum og afbrigði af hálfu klukkuprjóni. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum af DROPS Air.

DROPS Design: Mynstur ai-094 (Garnflokkur C+C eða E)

Mál: 48×45 cm. Púðaverið passar fyrir púða í stærðinni 50×50 cm þar sem það á að strekkjast aðeins svo að það verði fallegra.

Garn: Drops Air

  • 300 g litur á mynd er perlugrár nr 03

Prjónar: Hringprjónn 80 cm, nr 9

Prjónfesta: 10 lykkjur x 14 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 cm.

Uppskrift má nálgast frítt hérna og garnið kaupir þú hérna: Drops Air eða heimsækir okkur í verslunina.