Sky Stripes peysa – fyrir stelpur og stráka

Prjónuð peysa fyrir börn með röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri

Drops Design: Mynstur sk-010-bn (Garnflokkur B)

Stærðir: 2 (3/4) 5/6 (7/8) 9/10 (11/12) ára
ca hæð á barni í cm: 92 (98/104) 110/116 (122/128) 134/140 (146/152)

Garn: Drops Sky

  • Ljósgallabuxnablár nr 13: 100 (100) 100- (100) 100 (150) g
  • Hvítur nr 01: 50 (50) 50 (100) 100 (100) g

Prjónfesta: 21 lykkja x 28 umferðir með sléttu prjóni = 10×10 cm.

Prjónar: Sokka- og hringprjónn, 40 og 60 cm nr 3 og 4.

Uppskrift má nálgast frítt hérna og garnið kaupir þú hérna: Drops Sky eða heimsækir okkur í verslunina.