Krókur heilgalli og hjálmhúfa

1.050 kr.

Gallinn er prjónaður ofan frá og niður. Fyrst fram og til baka en síðan í hring. Laskaútaukning og mynstur meðfram listum að framan sem heldur áfram niður skálmar.

Stærðir: 0-2 (3-6) 6-9 (12-18) mánaða 2 ára

  • Yfirvídd ca: 47 (55) 59 (62) 66 cm

Garn: Scheepjes Terrazzo (50g = 175m)

  • 150 (200) 200 (200) 250 (250) g

Prjónar:

  • Hringprjónn 40-60 cm nr 3 og 3,5
  • Sokkaprjónar nr 3 og 3,5 (einnig hægt að nota stuttan hringprjón eða Addi CraSyTrio)

Prjónfesta: 22-23L = 10 cm á prjóna nr 3,5 í sléttu prjóni

Annað: nokkur prjónamerki og 6-8 tölur

Einnig hægt að versla á Ravelry

Á lager