Tvöfalt prjón – mistök leiðrétt

Öll gerum við mistök og oftast er einfalt að leiðrétta þau þó svo að stundum þurfi að rekja upp allt stykkið niður að villunni til að laga hana. Hér eru nokkur dæmi sem einfalt er að laga.

Þráður liggur yfir stykkinu

Ef það kemur fyrir að það gleymist að setja hægri prjón undir báða þræði þegar prjónuð er brugðin lykkja. Þessa villu er einfalt að laga og er það góð regla þegar prjónað er í hring að snúa stykkinu reglulega við og athuga hvort þessi villa sé til staðar og skoða hvort munstrið sé ekki örugglega rétt á báðum hliðum

Þráður liggur yfir 1

 Hér liggur hvíti þráðurinn yfir bleikri lykkju

Þráður liggur yfir 2

Þú þarft ekki að rekja upp allt stykkið, heldur rekur þá lykkju niður að þræðinum sem liggur yfir henni

Þráður liggur yfir 3

Stingur heklunál/prjóni undir lykkjuna og dregur hana undan hvíta þræðinum

Þráður liggur yfir 4Lykkjar upp aftur og villan hefur verið leiðrétt

Villa í munstri

Hér var ég að prjóna peysuna Hundagonga og rak augun í smá villu.

laga villu merkt

Ég gleymdi einni ljósblárri lykkju og kassinn varð alveg dökkblár í munstrinu

laga villu1 merkt

Lykkjan sem er röng er rakin niður að villu

laga villu2 merkt

Síðan er lykkjað upp aftur allar umferðir sem voru raktar upp

laga villu3 merkt

Peysan komin í lag og haldið áfram að prjóna

Skildu eftir svar