Þú finnur engar ömmudúllur eða blúndur í þessari bók. Í Hæklværk er að finna 11 hekl uppskriftir af flíkum á konur, nútímalegar og svalar flíkur sem þú getur gengið í dagsdaglega. Tæknin sem hönnuðurinn notar er heldur óvenjuleg en aftast í bókinni eru ljósmyndir sem sýna skref fyrir skref tæknina sem notuð er í bókinni.
Sidsel Sangild höfundur þessarar bókar er einstkalega hæfileikaríkur heklari sem hefur sérstaklega gott lag á að hanna heklaðar flíkur, hvort sem er á börn eða fullorðna.
Bókin er á dönsku.