.Dreams of Ireland

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og háum kanti í hálsmáli.

DROPS Design: Mynstur ee-754 (Garnflokkur E eða C+C)

Stærðir: XS (S) M (L) XL (XXL)
Yfirvídd: 100 (108) 116 (128) 140 (152) cm

Garn: Drops Snow

  • 700 (800) 850 (900) 1000 (1100) g – litur á mynd: páfagaukagrænn nr 103

Eða notið Drops Air (prjónað tvöfalt)

  • 450 (500) 550 (600) 700 (750) g – páfagaukagrænn nr 43

Prjónfesta: 10 lykkjur x 14 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 cm

Prjónar:

  • Sokka- og hringprjónar 40 og 80 cm, nr  8 og 9

Uppskrift má nálgast frítt hérna og garnið kaupir þú hérna: Drops Snow eða Drops Air eða heimsækir okkur í verslunina