No products in the cart.
Garnleiðangur
Í dag gerði ég nokkuð sem mig hefur lengi langað til.
Ég fór í garnleiðangur!
Sofia frænka sem er í heimsókn á Íslandi vildi fá að sjá hvaða garn Ísland hefur uppá að bjóða.
Sofia er eins og ég – við elskum báðar akríl – og það var yndislegt að fara í búðir með e-m sem kann að meta það sama og ég sjálf.
Þótt það sé skammarlega lélegt úrval af akríl garni hér á Íslandi þá kom það mér á óvart hve mikið var samt til. Þetta blogg er því tileinkað öllu því fallega akríl garni sem við fundum…og líka hinu sem var ekki alveg jafn fallegt.
Rúmfó: King Cole baby er til í 4 litum og kostaði í dag 595 kr. 100 gr. dokka.
Ég er btw ekki enn búin að jafna mig á því að Rúmfó hafi hætt að selja hitt King Cole garnið sem þeir voru með.


Þetta garn er tilvalið í að stór zikk zakk teppi.



Þessar dokkur Red Heart soft touch eru 140 gr. og kosta 1595 kr. Sem mér finnst í dýrari kanntinum, en þeir voru með nokkra góða liti.



Ég veit að heklarar í USA nota þetta garn mikið. Þetta eru stórar dokkur og flottir litir. Eeeen það er svo rosalega gróft að ég veit ekki hvort mig langar að hekla úr því. Kannski gæti það verið fínt í stór teppi og hekla þá með mjög stórri nál. Veit samt ekki.

Oooog svo smá fyrir þær sem eru að hekla krukkur eða bjöllur eða annað slíkt.


Er ekki alveg viss en held samt sem áður að það sé meira á Aunt Lydia’s dokkunum en Babylon.
Það er líka hægt að kaupa stóra Aunt Lydia’s dokkur sem eru næstum 1000 metrar (sem er helling) á 1990 kr.

Mar á aldrei nóg af glimmergarni er það nokkuð?!