Þýdd uppskrift: Cascade Crochet Afghan – Craft Yarn Counsil
Upphafslykkjur: Fitjið upp margfeldið af 36, bætið svo við 7 ll.
Ath: Teppið styttist um 1/5 eftir að byrjað er að hekla svo hafið upphafslykkjurnar aðeins lengri en teppið á að vera.
1. umf: 1 st í 4. ll frá nálinni, 1 st í næstu 2 ll, *[hoppið yfir 2 ll, kl í næstu ll, 3 ll, 1 st í næstu 3 ll], 3 sinnum, [3 ll, kl í næstu ll, hoppið yfir 2 ll, 1 st í næstu 3 ll] 3 sinnum*, endurtakið frá * að * þar til 1 ll er eftir, 1 st í síðustu ll, snúið við.
Ath: Héðan í frá er aðeins heklað í aftari hluta lykkjunnar.
2. umf: 3 ll (telst sem 1 st), *[1 st í næstu 3 st, hoppið yfir kl fyrri umf, hoppið yfir 2 ll, kl í 3. ll fyrri umf, 3 ll] 3 sinnum, [1 st í næstu 3 st, 3 ll, kl í næstu ll, hoppið yfir 2 ll, hoppið yfir kl fyrri umf] 3 sinnum*, endurtakið frá * til * þar til 4 st eru eftir, 1 st næstu 3 st, 1 st í 3. ll fyrri umf, snúið við.
Endurtakið 2. umferð þar til teppið er orðið nógu langt.